18.03.1982
Neðri deild: 54. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3144 í B-deild Alþingistíðinda. (2723)

208. mál, sveitarstjórnarlög

Magnús H. Magnússon:

Herra forseti. Vegna þess tímahraks, sem dagskrármálið er komið í, og þar eð félmn. hv. Ed. hefur ákveðið að opna málið aftur strax að hausti dreg ég brtt. mínar á þskj. 470 til baka, en mun flytja þær aftur að hausti, eftir því sem aðstæður leyfa og tilefni gefst til.