22.03.1982
Neðri deild: 56. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3154 í B-deild Alþingistíðinda. (2752)
144. mál, almannatryggingar
Frsm. 1. minni hl. (Sighvatur Björgvinsson):
Herra forseti. Þingmenn Alþfl. hafa á yfirstandandi og undanförnum þingum flutt bæði till. og frv. um að dregið yrði úr álagningu tekjuskatta. Við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1982 flutti fulltrúi Alþfl. í fjvn., hv. þm. Karvel Pálmason, m.a. tillögur um lækkun tekjuskatts og tilsvarandi niðurskurð á ríkisútgjöldum. Margvíslegt óréttlæti birtist í núverandi tekjuskattaálögum. Með lækkuðum tekjuskatti má treysta kaupmátt heimilanna án verðbólguáhrifa. Auk þess er jaðarskattur á venjulegum meðallaunatekjum allt of hár.
Þrátt fyrir þau augljósu rök, sem þannig hafa verið færð fram fyrir lækkun tekjuskatta, hafa tillögur um þetta efni ekki fengist samþykktar. Alþfl. vill nú enn freista þess að fá stuðning ríkisstjórnarflokkanna við hugmyndir sínar um lækkun tekjuskattsins. Komi slíkar stuðningur fram getur Alþfl. mælt með samþykkt fyrirliggjandi frv. Að óbreyttum ákvörðunum ríkisstj. um tekjuskattsálagningu telur Alþfl. hins vegar ekki fært að samþykkja fyrirliggjandi frv. þar eð heildarskattbyrði mikils fjölda launafólks er allt of há.
Það hefur engin tillaga komið fram frá hæstv. ríkisstj. eða þeim aðilum hér í þinginu, sem styðja ríkisstj., um stuðning við tillögur okkar Alþfl.-manna um tekjuskattslækkun, og hefur ekki heldur komið fram í meðferð þessa máls. Eins og skýrt er frá í nál. viljum við Alþfl.-menn taka sama kost og við tókum í hv. Ed., láta þetta mál afskiptalaust og greiða ekki atkv.