25.03.1982
Neðri deild: 58. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3253 í B-deild Alþingistíðinda. (2858)

55. mál, lánsfjárlög 1982

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Þessi brtt. minni hl. fjh.- og viðskn. felur í sér hækkun á lánum til Byggðasjóðs um 10 millj. frá því sem var í frv. Ég læt í ljósi mikla óánægju mína með afgreiðslu þessa máls þvert ofan í gefin loforð ákveðinna ráðherra og fyrirheit til að sinna þessu verkefni. Þó tel ég skárra að hækka þetta um 10 millj. en ekki neitt og segi því já.