25.03.1982
Neðri deild: 58. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3254 í B-deild Alþingistíðinda. (2860)

55. mál, lánsfjárlög 1982

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég leyfi mér að draga í efa að nokkurt fordæmi sé fyrir því að till., sem atkvgr. hefur fallið um og niðurstöðum hennar hefur verið lýst úr forsetastóli, geti verið tekin til baka og ógilt einungis af því að atkvgr. gekk á móti vilja hæstv. fjmrh. Ég vænti þess, að hæstv. forseti taki úrskurð sinn til baka, og beini því til hans, að atkvgr. verði látin ganga fram hér í deildinni. (Forseti: Ekki get ég orðið við því.)