25.03.1982
Neðri deild: 58. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3258 í B-deild Alþingistíðinda. (2882)

55. mál, lánsfjárlög 1982

Halldór Ásgrímsson:

Herra forseti. Ég vil taka það fram að við meðferð á þessum málum hefur verið ákveðið að skerða framlög til sjóða almennt um 6% og á það einnig við um þennan sjóð. Hins vegar vil ég taka það fram, að fallið var frá því að skerða Kirkjubyggingasjóð og er ekki gerð till. um að í þessum brtt. Ég segi já.