25.03.1982
Neðri deild: 58. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3259 í B-deild Alþingistíðinda. (2890)
55. mál, lánsfjárlög 1982
Pétur Sigurðsson:
Herra forseti. Hæstv. fjmrh. virtist og þóttist hafa himin höndum tekið er ég gerði grein fyrir atkv. mínu við atkvgr. sem hér fór fram á undan í sambandi við brtt. við þessa grein, sem óneitanlega er mótandi um hvað ríkisstj. hefur gert og er að gera í sambandi við þetta sparifé launþega í landinu. Ráðh. hafa tekið það með ógnunum og ofbeldi til ráðstöfunar í ríkishítina. Það er á móti þessu sem ég er, eins og ég er á móti því, að með valdboði frá Alþingi sé gengið inn á sparisjóðseign einstaklinganna í landinu til nota fyrir pólitískan meiri hl. sem stendur jafnveikt og hann gerir og hagar sér á þann hátt sem hann gerir nú á Íslandi. Ég segi því, herra forseti, nei.