25.03.1982
Neðri deild: 58. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3260 í B-deild Alþingistíðinda. (2898)

55. mál, lánsfjárlög 1982

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég vil upplýsa, að þessi till. er fram borin vegna sérstakra tilmæla frá landbrn. og að ósk þeirra manna sem mest hafa unnið að undirbúningi þessa máls. (Gripið fram í: Hverjir eru það?) Ef svo fer hins vegar að ekkert verður af framkvæmdum á þessu ári segir það sig sjálft að ekki reynir á heimildina og sýnist þá vera skaðlítið að heimildin hafi legið fyrir og verið samþykki. Ég segi því að sjálfsögðu já.