03.11.1981
Sameinað þing: 12. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 430 í B-deild Alþingistíðinda. (294)

1. mál, fjárlög 1982

Lárus Jónsson:

Herra forseti. Það var afskaplega einföld spurning sem ég lagði fyrir hæstv. ráðh. Ég vakti athygli hæstv. forseta og þingheims á að hæstv. viðskrh. talaði hér fyrir hönd Framsfl. og sagði skýrt og greinilega í þingsölum að ráðherrar Framsfl. hefðu fyrirvara á um ákveðin mál, um tvo sérstaka skatta. Og ég spyr hæstv. ráðh. einfaldrar spurningar: Hafa einhverjir aðrir ráðh. fyrirvara um þessa skatta? Ef hæstv.. ráðh. svarar ekki þessu, eftir að hæstv. viðskrh. hefur sagt að framsóknarmenn hafi fyrirvara um þessa tvo þætti fjárlaganna, skil ég það svo að aðrir hafi það ekki.