30.03.1982
Sameinað þing: 70. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3331 í B-deild Alþingistíðinda. (2949)
366. mál, atvinnumál á Suðurnesjum
Fyrirspyrjandi (Karl Steinar Guðnason):
Herra forseti. Ég þakka svar forsrh., sem var sú skýrsla sem umrædd nefnd hefur tekið saman. Mér sýnist á þeirri skýrslu sem lítið hafi í raun verið gert. Það hefur verið safnað saman upplýsingum um málefni sem menn þar syðra hafa vitað að hafa verið til umhugsunar. En það fólk, sem nú gengur atvinnulaust og hefur gengið atvinnulaust og mun sennilega ganga atvinnulaust að óbreyttu, hefur litla atvinnu af því sem hér er upp talið, og hræddur er ég um að bráðar aðgerðir þurfi til að koma ef úr á að bæta.
Eins og ég gat um áðan voru í febrúarmánuði á annað hundrað manns atvinnulausir og 75 manns fengu atvinnuleysisbætur s.l. föstudag. Menn vona að sjálfsögðu að þetta lagist núna í aprílmánuði, en þegar vertíðinni lýkur veit ég ekki hvað er fram undan. Ég veit að ástandið er alla vega alvarlegt.
Ég hygg að af því, sem hér er nefnt og er næsta rýrt, verði ekki neitt nema tryggt verði fjármagn til að framkvæma það sem þarna er um talað, og vissulega skortir það til að hleypa nýju lífi í atvinnulíf á Suðurnesjum.
Eins og ég gat um áðan er hvert fyrirtækið á eftir öðru að hætta rekstri þar. Ekkert nýtt virðist á döfinni. Það, sem þessi skýrsla gefur til kynna, er ekkert sem getur komið til í náinni framtíð. Við skulum vona að það verði ekki langt þangað til, en það, sem núna þarf, eru úrbætur nú þegar. Vona ég að ríkisstj. sjái sóma sinn í að sinna þessu svæði betur en hér virðist vera um að ræða.
Það er vissulega furðulegt að ríkisstj., sem búin er að sitja þennan tíma, skuli fyrst 24. júní s.l. láta sér detta í hug að kalla saman nefnd til að skrifa upp svona upplýsingar eða hugmyndir sem hafa verið til umræðu hjá sveitarstjórnum á Suðurnesjum að eigin frumkvæði. Frá ríkisins hálfu virðist sáralítið eða ekkert fyrirhugað eða ekkert frumkvæði koma.