01.04.1982
Efri deild: 62. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3477 í B-deild Alþingistíðinda. (3028)

130. mál, Aflatryggingasjóður sjávarútvegsins

Frsm. (Stefán Guðmundsson):

Herra forseti. Vegna þess, hversu dregist hefur að ganga frá þessu máli og það á nú eftir að fara í gegnum Nd., hef ég leyft mér að flytja brtt. við 4. gr., sem hljóðar þannig: „Lög þessi öðlast gildi 1. apríl 1982.“ Brtt. felur sem sagt í sér að í stað 1. apríl 1982 komi 1. maí 1982.