01.04.1982
Neðri deild: 60. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3505 í B-deild Alþingistíðinda. (3054)

55. mál, lánsfjárlög 1982

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Örstutta athugasemdin, sem ég ætla að gera, er sú, að á þeim fundi fjvn., þar sem þetta plagg var lagt fram, var aðeins eitt mál til umr. Til fundarins var boðað eingöngu um þetta eina mál og það var um vegamál. Þetta tek ég fram til þess að fólk viti og átti sig á því, hvernig með það mál er farið sem hér hefur verið bent á. Auðvitað er það hæstv. ríkisstj. til stórskammar hvernig haldið hefur verið á þessu máli.