02.04.1982
Neðri deild: 61. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3557 í B-deild Alþingistíðinda. (3104)

231. mál, umferðarlög

Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, felur í sér þá breytingu á umferðarlögum, að eigin áhætta, sjálfsábyrgð þess sem fébótaábyrgð ber á tjóni af völdum skráningarskylds vélknúins ökutækis, verði ákveðin af dómsmrh. að fengnum tillögum frá Tryggingaeftirlitinu. Fjárhæð þessi er nú fastákveðin í lögum 360 kr. og hefur verið frá því á árinu 1980. Hefur fjárhæð þessi nú minnkað að verðgildi og hefur þannig ekki sömu áhrif til varnar gegn umferðarslysum eða til lækkunar á iðgjöldum og áður. Því er brýnt að heimild fáist til að hækka þessa fjárhæð. Er lagt til að dómsmrh. verði veitt heimild til að ákveða fjárhæð eigin áhættunnar að fengnum tillögum Tryggingaeftirlitsins. Eins og frv. hefur verið breytt í Ed. má fjárhæð þessi ekki vera hærri en 1.25% af lögboðinni vátryggingarfjárhæð ökutækis.

Herra forseti. Ég tel eigi ástæðu til að viðhafa fleiri orð um frv. þetta. Ég vil beina því til hv. þingnefndar, að athugun máls þessa verði hraðað, en iðgjöld bifreiðatrygginga hafa nýlega verið ákveðin og þá gert ráð fyrir hækkun eigin áhættunnar.

Að svo mæltu legg ég til að frv. þessu verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.