05.04.1982
Efri deild: 64. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3601 í B-deild Alþingistíðinda. (3142)

202. mál, birting laga

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Frv. það, sem hér um ræðir, hefur þann tilgang einan að tryggja að almenningur fái betri vitneskju um athafnir stjórnvalda, útgáfu brbl. Ég tel fráleitt að samþykkja ekki svo einfalt frv. sem hér er um að ræða. Að skjóta sér undan að taka afstöðu til þess með því að vísa málinu til ríkisstj. tel ég fráleitt. Ég segi nei.