05.04.1982
Efri deild: 64. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3604 í B-deild Alþingistíðinda. (3145)
272. mál, Kísiliðjan
Davíð Aðalsteinsson:
Herra forseti. Aðeins örfá orð í tilefni þessa frv. Ég vil í sjálfu sér ekki neita því, að þær ráðagerðir séu eðlilegar sem hér eru uppi, þ.e. að auka hlutdeild ríkissjóðs í þessu fyrirtæki. Það er augljóst að þarna hafa verið rekstrarörðugleikar. Hins vegar fyndist mér æskilegra að slík aukning hlutafjár gerðist undir öðrum kringumstæðum. Ég vil ekki neita því, að það er frekar óbragð að því með tilliti til þess, að samstarfsaðilar okkar sjá sér, að því er virðist, ekki fært að auka hlutafjárframlög til jafns við okkur. Hins vegar ætla ég ekki að fara að leggja stein í götu þessa frv. Ég stend ekki hér upp til þess. Það, sem ég vil fyrst og fremst að hæstv. ráðh. tjái sig um í ríkari mæli en hann gerði hér í ræðustól, er þátttaka sveitarfélaganna í þessum rekstri með tilliti til hlutafjár, ekki síst í ljósi þeirra ráðagerða sem uppi eru um nýjan iðjurekstur sem þingið mun koma til með að fjalla um næstu daga. Þar er gert ráð fyrir verulegri þátttöku heimaaðila, og þá finnst mér heldur leiðinlegt að sjá það hér, að hlutfall heimaaðila skuli fara lækkandi. Ég vildi æskja þess, að nú þegar yrði athugað við heimamenn hvort þeir vildu ekki í þessu sambandi leggja sitt af mörkum. Ég vildi aðeins víkja þeirri spurningu að hæstv. iðnrh.