05.04.1982
Efri deild: 64. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3607 í B-deild Alþingistíðinda. (3152)
55. mál, lánsfjárlög 1982
Frsm. meiri hl. (Ólafur Ragnar Grímsson):
Herra forseti. Fjh.- og viðskn. þessarar deildar kom saman til fundar s.l. föstudag og komu þá á fund n. starfsmenn hagdeildar Seðlabanka Íslands. Jafnframt hafði n. samband við hæstv. fjmrh. og kom á framfæri við hann óskum um viðbótarupplýsingar. Upplýsingar frá Seðlabankanum og þær upplýsingar, sem hæstv. fjmrh. ætlaði að láta nefndinni í té, hafa nú borist þeim sem upplýsinganna óskuðu og verður væntanlega vikið að þeim hér í umr. á eftir.
Að öðru leyti sjáum við, sem myndum meiri hluta fjh.og viðskn. ekki ástæðu til að fjalla nánar efnislega um málið, nema tilefni gefist til í umr. hér á eftir, en leggjum til að frv. til lánsfjárlaga verði samþykkt eins og það birtist deildinni eftir umfjöllun í hv. Nd.