05.04.1982
Neðri deild: 62. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3632 í B-deild Alþingistíðinda. (3172)

58. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Ég er alfarið á móti þessum sérstaka skatti á verslunar- og skrifstofuhúsnæði, en þar sem ég tel þó skárri brtt. þá, sem hér liggur fyrir til atkvgr., en sjálfa greinina í frv., þá vil ég freista þess að fá skattinn lækkaðan og því segi ég já.