05.04.1982
Neðri deild: 62. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3640 í B-deild Alþingistíðinda. (3181)

222. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins

Frsm. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Landbn. hefur á fundum sínum fjallað um þetta frv. og varð sammála um afgreiðslu þess. Nefndin leggur fram eina brtt., að aftan við frv. bætist svohljóðandi ákvæði til bráðabirgða:

Lög nr. 45 frá 16. apríl 1971 skulu endurskoðuð í heild og skal endurskoðun þeirra lokið fyrir árslok 1984. Frv. var sent Búnaðarþingi til umsagnar og mælir Búnaðarþing með að frv. verði samþykkt með þeirri breytingu að í 2. tölul. 1. gr. á eftir orðunum „og þjónusta landbúnaðarins“ komi: til ársloka 1985. Nefndin taldi að hún hefði í raun og veru orðið við þessari breytingu með bráðabirgðaákvæðinu sem ég er búinn að skýra frá.