06.04.1982
Sameinað þing: 74. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3645 í B-deild Alþingistíðinda. (3191)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Jón Helgason):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Alþingi, 5. apríl 1982.

Benedikt Gröndal, 4. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum mun ég ekki geta sótt þingfundi á næstunni. Leyfi ég mér því með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varaþm. Alþfl. í Reykjavík, Jón Baldvin Hannibalsson ritstjóri í Reykjavík, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Sverrir Hermannsson,

forseti Nd.

Jón Baldvin Hannibalsson hefur áður átt sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og rannsókn kjörbréfs hans þá farið fram. Býð ég hann velkominn til starfa á Alþingi.