16.04.1982
Neðri deild: 64. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3892 í B-deild Alþingistíðinda. (3358)

216. mál, ábúðarlög

Frsm. meiri hl. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Landbn. hefur rætt þetta frv. á fundum sínum og liggur hér frammi brtt. frá nefndinni á þskj. 527. Síðan þessi brtt. var samþykkt og afgreiðsla málsins fór fram í nefndinni hafa komið viðbótarupplýsingar sem gera það að verkum, að nefndin óskar eftir að taka brtt. aftur til 3. umr. og mun á fundi sínum á milli umr. athuga frekar um afgreiðslu málsins.