05.11.1981
Sameinað þing: 13. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 496 í B-deild Alþingistíðinda. (340)
325. mál, símaþjónusta opinberra stjórnsýslustofnana
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Það var aðeins út af ummælum hæstv. ráðh. Við munum vel hvernig stendur á háum símgjöldum úti á landsbyggðinni. Það er ekki síst því um að kenna, að fyrsta vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar setti söluskatt á síma, sem ekki var áður, og því hefur ekki fengist hrundið. Það er einn af vinstristjórnarsköttunum að greiddur er söluskattur af síma. Einfaldasta ráðið til að lækka símkostnaðinn er auðvitað að aflétta þessum söluskatti, eða hitt, sem líka kemur til greina, að fella niður innflutningsgjöld af þeim vörum sem þarf til að símavæða landið og bitna auðvitað þyngst á landsbyggðinni og koma í veg fyrir að hægt sé að símavæða landið eins hratt og ella. Þetta er kjarni málsins.