19.04.1982
Neðri deild: 65. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3943 í B-deild Alþingistíðinda. (3433)

168. mál, dýralæknar

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Ég tók það skýrt fram þegar ég mælti fyrir nál. þriggja nm. í landbn. Nd., að ég teldi nauðsyn á að þessi lög yrðu endurskoðuð hið fyrsta. Ég gerði samkomulag í þeirri nefnd um afgreiðslu þessa máls. Hér er hins vegar um að ræða viðaukatillögu og ég tel mig ekki brjóta það samkomulag sem ég gerði í nefndinni, þó ég segi já við þessari viðaukatillögu. Ég segi já.