19.04.1982
Neðri deild: 65. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3943 í B-deild Alþingistíðinda. (3435)

168. mál, dýralæknar

Halldór Ásgrímsson:

Herra forseti. Mér hefði þótt nauðsynlegt að í frv. þessu væri gildistökuákvæði áður en kæmi brtt. um að fella það úr gildi og vil ég beina því til hv. nefndar að taka það til athugunar milli 2. og 3. umr. En ég er andvígur því, að þessi lög falli úr gildi, og segi því nei.