05.11.1981
Sameinað þing: 13. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 498 í B-deild Alþingistíðinda. (344)
325. mál, símaþjónusta opinberra stjórnsýslustofnana
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Það er hálf-ömurlegt að hlusta á þm. Reykv. vera sífellt að gera upphlaup hér á Alþingi í sambandi við jöfnun símkostnaðar í landinu. Ég helt satt að segja að í gegnum árin væri búið að sýna og sanna svo rækilega, hvers konar óréttlæti íbúar landsbyggðarinnar búa við í þessum efnum, að ekki þyrfti að fara að ræða um það hér á hv. Alþingi þó verið væri að reyna að lagfæra þetta með þeim skynsamlegustu aðferðum sem yfirvöld eða tæknimenn þessara mála hafa yfir að ráða. Þess vegna finnst mér furðulegt að menn skuli koma hér og belgja sig út um það að verið sé að skapa óréttlæti með því að jafna út þennan mismun. (HBl: Hver hefur sagt það?) Mér finnst það alveg furðulegt. Ég gæti talað langt mál við hv. 10. þm. Reykv. um þetta efni við annað tækifæri. En ég ætla bara að segja það, að ég hef í fórum mínum skýrslur frá Landssíma Íslands sem sýna og sanna í tölum hver þessi mismunur er, og ég ætla við tækifæri, þegar till. hv. 10. landsk. þm. kemur hér til umr., að koma með þau gögn hér á borðið. Ég ætla að segja það í leiðinni, að fyrsta skrefið, sem stigið er til þess að útrýma að nokkru þessu óréttlæti í landinu, það er sú símvæðing á sjálfvirkum síma sem nú fer fram og á að fara fram og búið er að samþykkja lög um. Einmitt í þeim lögum kemur fram það sem hv. 7. landsk. þm. var að tala um áðan. Það er gert ráð fyrir að fella niður öll aðflutningsgjöld og söluskatt í sambandi við þetta verkefni og það er vel. En umfram allt skulum við tala um þessi mál þannig að ekki sé verið að reyna að skapa ófrið eins og hér er verið að efna til af nokkrum þm. Reykv.