19.04.1982
Neðri deild: 66. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 3956 í B-deild Alþingistíðinda. (3468)

217. mál, jarðalög

Frsm. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Ég hef raunar engu við að bæta það sem fram hefur komið um þetta mál því að þetta mál er í tengslum við ábúðarlögin. Meiri hl. landbn. tekur brtt. sína til baka og leggur til að frv. verði samþykkt eins og það var lagt fram.