23.04.1982
Efri deild: 69. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4083 í B-deild Alþingistíðinda. (3665)

58. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um sérstakan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði. Frv. þetta er góðkunningi hv. þm. því að samsvarandi frv. hefur verið hér á ferðinni í þinginu allt frá árinu 1978 þegar þessi skattur var fyrst lagður á.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta frv. sem svo m jög hefur verið til umr. hér á Alþingi á undanförnum árum og allir hv. þm. gjörþekkja. Ég vil því leyfa mér að leggja til að málinu verði vísað til hv. fjh.- og viðskn. að lokinni þessari umr.