23.04.1982
Neðri deild: 68. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4116 í B-deild Alþingistíðinda. (3695)
3. mál, Sinfóníuhljómsveit Íslands
Jóhann Einvarðsson:
Herra forseti. Á þskj. 612 hef ég ásamt hv. þm. Árna Gunnarssyni, Garðari Sigurðssyni og Jósef H. Þorgeirssyni flutt brtt. við frv. það sem Sinfóníuhljómsveit Íslands sem hér er til 2. umr. Brtt. þessi kom það seint fram að ekki reyndist unnt að vísa henni til hv. menntmn. þessarar deildar, en þar sem mér er kunnugt um að hv. nm. var kunnugt um þessa brtt., er þeir fjölluðu um frv., til ég ekki nauðsynlegt að tefja málið með því að óska eftir formlegri umfjöllun nefndarinnar um hana. Það er alls ekki, nema síður sé, ætlun flm. að tefja afgreiðslu þessa frv. með þessum tillöguflutningi og lengja þannig þann tíma sem Sinfóníuhljómsveitin verður að starfa og spila án þess að hafa nokkur lög, þ.e. lög um tilvist og starfsemi Sinfóníuhljómsveitarinnar, svo sem verið hefur undanfarin rúm 30 ár.
Þær breytingar, sem við flm. leggjum til að gerðar verði á frv., eru tvær. Þær eru mjög einfaldar og þurfa í sjálfu sér ekki mikilla skýringa við.
Sú fyrri er við 3. gr. og er tekin upp úr upphaflega frv., en hv. Ed. felldi það burt, sem ég tel að hafi verið mistök. Hún hljóðar um að hljómsveitin afli sér eigin tekna og stefnt sé að því að þær, þ.e. tekjurnar, nái 12% af rekstrarkostnaði. Ég tel rétt að hafa þetta ákvæði í lögunum, að stefnt skuli að slíkum tekjustofni og kveðið á um takmark þeirrar stefnumótunar og hver meining Alþingis sé með því. Ég tel með öllu óhæft að öllum eða nánast öllum rekstrarkostnaði við slíka stofnun sem Sinfóníuhljómsveitin er sé skellt á opinbera aðila, svo sem verið hefur og reikna má með ef frv. verður afgreitt í óbreyttri mynd. Reynsla síðustu ára hefur sýnt að svo er, enda hafa eigin tekjur hljómsveitarinnar einungis verið um 6–8% síðustu árin. Ég vil ítreka að þetta ákvæði er tekið óbreytt upp úr frv: eins og hæstv. menntmrh. lagði það fram.
Síðari brtt. tel ég einungis vera leiðréttingu, þ.e. í stað orðanna „í minnst“ í 6. gr. komi: allt að. Ég tel að það sé ætlunin með þessu ákvæði að hljómsveitin sé skipuð allt að 65 stöðum eða stöðugildum, en ekki að hún sé skipuð hið minnsta 65, en á því er að sjálfsögðu mikill munur. Í frv. er heimild til þess í sérstökum tilfellum að ráða fleiri hljóðfæraleikara tímabundið og til sérstakra verkefna. Því teljum við flm. að hljómsveitin eigi að vera skipuð allt að 65 stöðum og fleiri ef flutningur sérstakra tónverka krefst þess.
Eins og ég tók fram áðan þurfa þessar brtt. ekki mikla umfjöllun. Svo ljósar eru þær, að unnt á að vera fyrir þm. að samþykkja þær án sérstakrar umfjöllunar hv. menntmn., og því alls ekki þörf á að tefja afgreiðslu málsins, enda ekki ætlun eða tilgangur flm. með þessum tillöguflutningi.
Herra forseti. Ég beini því til hv. deildar að samþykkja þessar tillögur okkar.