24.04.1982
Efri deild: 70. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4144 í B-deild Alþingistíðinda. (3737)

262. mál, hlutafé Íslands í Alþjóðabankanum

Frsm. (Lárus Jónsson):

Herra forseti. Hv. fjh.- og viðskn. hefur haft þetta mál til athugunar, en eins og kunnugt er fjallar það um eflingu Alþjóðabankans, en hann er stofnun sem fyrst og fremst er til stuðnings þróunarlöndum. Á þskj. 692 mælir nefndin einróma með að frv. verði samþykkt.