24.04.1982
Efri deild: 71. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4160 í B-deild Alþingistíðinda. (3793)

248. mál, fangelsi og vinnuhæli

Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir stjfrv. til l. um breytingu á lögum um fangelsi og vinnuhæli, nr. 38 frá 24 apríl 1973. Frv. þetta var lagt fyrir hv. Nd. og hefur hún samþ. það óbreytt.

Forsaga þessa máls er sú, að á s.l. vori var samþykkt á Alþingi þáltill. varðandi menntun fangavarða. Samkv. henni hefur nefnd skilað tillögu um hvaða skilyrði væri rétt að setja um grunnmenntun fangavarða og hvernig námskeiðahaldi mætti haga til að mennta fangaverði til starfans. Skýrslu nefndarinnar hefur verið dreift á Alþingi fyrir nokkru. Til að skapa grundvöll fyrir setningu reglugerðar um menntun fangavarða svo og um önnur skilyrði, sem rétt þætti að setja um ráðningu manna til fangavarðastarfa hefur frv. þetta verið samið. Það felst í því, að 12. gr. laganna hefur verið endurskrifuð þannig að hún raki til alls starfsliðs fangelsa í stað þess starfsliðs eingöngu sem veitir sérhæfða þjónustu, eins og nú er. Er gert ráð fyrir að nánari ákvæði um fyrirkomulag sérhæfðrar þjónustu séu sett með reglugerð.

Frv. þetta er mjög einfalt í sniðum og læt ég þessi orð nægja til að fylgja því úr hlaði, en legg til að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.