28.04.1982
Efri deild: 75. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4278 í B-deild Alþingistíðinda. (3921)

222. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins

Frsm. (Jón Helgason):

Herra forseti. Landbn. hefur fjallað um frv. til laga um breytingu á lögum um Stofnlánadeild landbúnaðarins, landnám. ræktun og byggingar í sveitum.

Nefndarmenn eru sammála um að leggja til að frv. verði samþykkt eins og það var afgreitt frá Nd. Fjarverandi við afgreiðslu málsins var Þorv. Garðar Kristjánsson.