28.04.1982
Neðri deild: 73. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4307 í B-deild Alþingistíðinda. (4019)

193. mál, veiting ríkisborgararéttar

Frsm. (Jósef H. Þorgeirsson):

Herra forseti. Allshn. Nd. hefur haft til athugunar á milli 2. og 3. umr. frv. til laga um veitingu ríkisborgararéttar. Nefndin hefur orðið sammála um að flytja brtt. við frv. og gerir þar ráð fyrir að við greinina bætist eitt nafn. Till. er á þskj. 766.