28.04.1982
Neðri deild: 73. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4324 í B-deild Alþingistíðinda. (4041)

131. mál, útflutningsgjald af grásleppuafurðum

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Þá vek ég athygli á því, að hv. deild hefur ákveðið að þar sem talað er um Samtök grásteppuhrognaframleiðenda, svo frábært sem það orð er nú, skuli í frv. þessu það vera samheiti, en ekki sérheiti, og breytist þess vegna 4. liður 3. gr. í samræmi við það, stafsetningarbreyting sem ég skoða samþykkta ef enginn hreyfir athugasemdum.