28.04.1982
Neðri deild: 73. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4324 í B-deild Alþingistíðinda. (4044)
130. mál, Aflatryggingasjóður sjávarútvegsins
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Í samræmi við þá afgreiðslu, sem frv. um útflutningsgjald á grásleppuafurðum fékk, tel ég nauðsynlegt, að smáorðalagsbreyting eða leiðrétting verði gerð við 1. gr. Þar er talað um að sjóðsstjórn skuli kveðja til tvo fulltrúa frá Samtökum grásleppuhrognaframleiðenda. Ég tel eðlilegt með hliðsjón af afgreiðslu sjútvn. á hinu fyrra frv., að hér sé einnig lítill stafur og fyrir „Samtök“ með stórum staf komi „samtök“ með litlum staf, og mun leggja fram brtt. í samræmi við það.