30.04.1982
Efri deild: 78. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4410 í B-deild Alþingistíðinda. (4115)

193. mál, veiting ríkisborgararéttar

Frsm. (Eiður Guðnason):

Herra forseti. Í allshn. Nd. voru gerðar nokkrar breytingar á frv. til l. um veitingu ríkisborgararéttar frá því sem samþykkt hafði verið hér. Bætt var við, að ég hygg, þremur nýjum nöfnum. Allshn. þessarar hv. deildar hefur komið saman og farið yfir þær breytingar, sem gerðar voru á frv. í Nd., og mælir með því, að frv. verði samþykkt eins og það var afgreitt frá neðri deild.