09.11.1981
Neðri deild: 10. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 574 í B-deild Alþingistíðinda. (412)

58. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég harma þessi svör ráðh., vegna þess að þau stangast á við þær upplýsingar sem ég gaf úr þessum ræðustól fyrir helgina um sama efni. Ég vil endurtaka að bankaráð Útvegsbankans hefur gert ákveðna samþykkt í þessu máli og ekki aðeins skrifað ríkisstj. bréf og tilkynnt henni væntanlegar ráðstafanir, heldur hef ég einnig talað persónulega bæði við hæstv. viðsk.- og bankamálaráðh. og hæstv. forsrh. nú nýlega, nokkrum dögum áður en ég fór í ræðustól fyrir helgina og svaraði hv. 3. þm. Vestf.