30.04.1982
Efri deild: 78. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4414 í B-deild Alþingistíðinda. (4130)

131. mál, útflutningsgjald af grásleppuafurðum

Frsm. (Stefán Guðmundsson):

Herra forseti. Ég vil mælast til að umr. um þetta dagskrármál verði frestað svo að sjútvn. Ed. gefist ráðrúm til að athuga málið. Tíminn er naumur, ef frv. á að geta gengið í gegnum þetta þing. Vonast ég til að nm. sjútvn. geti gefið sér aðeins tíma til að athuga frv.