30.04.1982
Efri deild: 78. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4437 í B-deild Alþingistíðinda. (4157)

131. mál, útflutningsgjald af grásleppuafurðum

Frsm. (Stefán Guðmundsson):

Herra forseti. Sjútvn. hefur komið saman og fjallað um breytingar á frv. um útflutningsgjald af grásleppuafurðum, eins og það er komið frá hv. Nd. Sjútvn. varð sammála um að verða við þessum brtt., en treystir því, að í reglugerð verði tryggilega frá því gengið, vegna ákvæða um endurgreiðslu tryggingariðgjalda, að þeir, er þessar veiðar stunda, verði ætíð bæði slysa- og örorkutryggðir.