30.04.1982
Neðri deild: 75. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4439 í B-deild Alþingistíðinda. (4178)

253. mál, ríkisreikningurinn 1978

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um samþykkt á ríkisreikningnum fyrir árið 1978. Frv. þetta hefur verið afgreitt af Ed. Frv. er samið eftir ríkisreikningi fyrir árið 1978 sem hefur verið lagður fyrir þingið samtímis frv. eins og kunnugt er.

Herra forseti. Það er ekki ástæða til að fjölyrða frekar um þetta frv., en ég leyfi mér að leggja til að að lokinni þessari umr, verði málinu vísað til hv. fjh.- og viðskn.