03.05.1982
Neðri deild: 78. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4493 í B-deild Alþingistíðinda. (4244)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 3. maí 1982.

Samkv. beiðni Jósefs H. Þorgeirssonar, 2. landsk. þm., sem farinn er til útlanda í opinberum erindagerðum, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður hans, frú Sigurlaug Bjarnadóttir menntaskólakennari, taki á meðan sæti hans á Alþingi.

Virðingarfyllst.

Þorv. Garðar Kristjánsson.“

Sigurlaug Bjarnadóttir hefur áður átt sæti á þessu þingi. Þarfnast kjörbréf hennar því ekki rannsóknar. Býð ég hana velkomna til starfa.