03.05.1982
Sameinað þing: 86. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4530 í B-deild Alþingistíðinda. (4287)
122. mál, Orkubú Suðurnesja
Jóhann Einvarðsson:
Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessa umr. mjög, en ég vil fyrir hönd flm. þessarar þáltill. þakka hv. allshn. fyrir störf hennar og þakka þeim sem gert hafa það mögulegt að till. komi nú til afgreiðslu hér á hv. Alþingi. Ég vænti þess, að hv. þm. taki undir orð mín með því að samþykkja þessa till. Ég er viss um og reyndar veit af viðræðum mínum við sveitarstjórnarmenn á Suðurnesjum, að Suðurnesjamenn munu fagna samþykkt þessarar þáltill. Er þar með lagður grundvöllur að stofnun Orkubús Suðurnesja með því að sameina Hitaveitu Suðurnesja og rafveiturnar á Suðurnesjum.
Ég ítreka orð mín um það, að ég þakka hv.allshn. fyrir hennar störf.