03.05.1982
Sameinað þing: 86. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4533 í B-deild Alþingistíðinda. (4298)

252. mál, fjáraukalög 1978

Frsm. (Þórarinn Sigurjónsson):

Herra forseti. Fjvn. hefur haft frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1978 til umsagnar. Eins og fram kemur í aths. um frv. hafa yfirskoðunarmenn ríkisreikninga lagt til að þær aukafjárveitingar, sem um ræðir samkv. frv., verði samþykktar. Fjvn. hefur borið niðurstöður frv. saman við ríkisreikninginn og ekkert fundið athugavert. Er nefndin sammála um afgreiðslu frv. og leggur til að það verði samþykkt.