04.05.1982
Efri deild: 81. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4601 í B-deild Alþingistíðinda. (4359)

299. mál, ábyrgð vegna norrænna fjárfestingalána

Viðskrh. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Ég vil aðeins taka fram að það varð samkomulag um það í ríkisstj.hæstv. dómsmrh. flytti þetta mál. Það er gert vegna þess að hann fer með starf samstarfsráðherra í Norðurlandasamstarfi, en eins og hv. þm. er kunnugt fer viðskrn. með þau mál sem varða skipti Íslands við alþjóðlegar fjármálastofnanir. — Ég vil aðeins taka það fram til upplýsingar að það varð samkomulag um að hafa þennan hátt á eins og hefur verið áður um málefni Norræna fjárfestingarbankans.