04.05.1982
Neðri deild: 82. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4622 í B-deild Alþingistíðinda. (4427)

242. mál, orlof

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Ég hafði hugsað mér að fresta umr. um orlof. Þegar umr. um mál er frestað er erfitt um framhaldið að segja, enda minnist ég þess ekki að menn hafi verið beðnir um tímasetningu á framhaldsumræðu. En ef hv. þm. hefur þolinmæði kynni það að verða eitthvað eftir miðnætti.