05.05.1982
Neðri deild: 84. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4666 í B-deild Alþingistíðinda. (4489)

279. mál, kísilmálmverksmiðja á Reyðarfirði

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Eins og búið er nú að ganga frá breytingum á þessu frv. er í rauninni aðeins verið að taka ákvörðun um áframhaldandi undirbúning að verksmiðjunni, en ekki verið að taka endanlega ákvörðun um að hefja verksmiðjurekstur með þeim hætti sem upphaflega var fyrirhugaður af hæstv. ríkisstj. Ég tel að fyrirsögn frv. eigi að vera í réttu samræmi við innihald þess, en um það fjallar þessi brtt., og segi því já.