05.05.1982
Neðri deild: 85. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4679 í B-deild Alþingistíðinda. (4505)

279. mál, kísilmálmverksmiðja á Reyðarfirði

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Það var ég ekki að segja, heldur var ég að taka það fram, að því var treyst, þegar ég féllst á til samkomulags að fresta atkvgr. eftir 2. umr. og 3. umr. til dagsins í dag, að það samkomulag yrði haldið. Það er greinilegt að það hefur annaðhvort ekki verið leitað eftir því eða viðkomandi ekki fallist á það, og við því er ekkert að segja. Ég er aðeins að rifja upp það sem fram fór hér í gær.