06.05.1982
Neðri deild: 87. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4772 í B-deild Alþingistíðinda. (4576)

220. mál, fóðurverksmiðjur

Frsm. meiri hl. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Á þskj. 890 er nál. frá meiri hl. landbn. um það, að meiri hl. leggur til að frv. verði samþykkt eins og það kom frá Ed. Undir þetta nál. skrifa fyrir utan mig hv. þm. Þórarinn Sigurjónsson, Skúli Alexandersson og Eggert Haukdal. Minni hl. hefur skilað séráliti.

S. l. mánudag ræddi hæstv. landbrh. um þetta mál, þegar 1. umr. fór fram, og ég sé ekki ástæðu til þess að rifja það upp þar sem það er svo nýrætt hér í deildinni, en vísa til þess sem þar kom fram um þetta mál.