06.05.1982
Sameinað þing: 89. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4805 í B-deild Alþingistíðinda. (4600)

127. mál, hagnýting orkulinda

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Ég tel að þáltill., sem hér liggur fyrir, sé mjög skýr stefnumörkun sem ég trúi að sé besta ályktun sem hægt er að gera og starfa eftir. Hins vegar hefur ríkisstj. bögglast illilega með þetta mál á liðnum árum og mér finnst vera nóg á borðum ríkisstj. þó ekki sé verið að bæta þeirri kvöl á hana aftur að ræða um stóriðju, eins og samkomulagið er á þeim bæ, og ég segi nei.