06.05.1982
Sameinað þing: 89. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4806 í B-deild Alþingistíðinda. (4602)

149. mál, virkjunarframkvæmdir og orkunýting

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Þessi till. er stefnumótandi till. sem Sjálfstfl. hefur áður kynnt og er ég innihaldi hennar sammála. En það stendur alveg sérstaklega á fyrir mér, og eiginlega tepptur undir annarri lóð, því að ég hafði eftir mikla vinnu gert samkomulag um afgreiðstu á aðaltill. sem þessi brtt. er flutt við. Þar var hvert orð vigtað og jafnvel tekist á um greinarmerkjasetningu, og ekki hefði náðst samkomulag um að hafa þetta þar með. Til þess nú að enginn ætli mér að ég ætli í neinu að hverfa frá því samkomulagi, þá þykir mér nauðsyn til bera þrátt fyrir innihald þessarar till. að segja nei.