10.11.1981
Sameinað þing: 17. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 609 í B-deild Alþingistíðinda. (463)
Umræður utan dagskrár
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Hv. 1. þm. Reykv. flutti hér nokkra ræðu áðan og fór með mjög alvarlegar dylgjur og ásakanir í garð míns flokks, Alþb. Ég tel að það sé í raun og veru ósæmandi að slíta þessari umr. án þess að kostur gefist á að svara fyrir þær árásir sem hv. þm. hér flutti.
Ég vil segja það og leggja á það áherslu af minni hálfu og óska eftir því, við hæstv. forseta, að þessari umr. verði fram haldið á næsta fundi Sþ. Þá eru væntanlega einnig á dagskrá fyrirspurnir til hæstv. utanrrh., bornar fram af formanni þingflokks Alþb., hv. þm. Ólafi Ragnari Grímssyni.
Ég óska sem sagt eftir því við hæstv. forseta, að tryggt verði að þessari umr. verði fram haldið þegar á næsta fundi sameinaðs þings.