06.05.1982
Sameinað þing: 89. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4839 í B-deild Alþingistíðinda. (4630)

Umræður utan dagskrár

Matthías Á. Mathiesen:

Herra forseti. Hv. ræðumaður, 11. þm. Reykv., kom hér upp í ræðustólinn, og ég vil segja það, að ræða hans staðfesti það sem hér var sagt áðan, að mönnum er nú ljóst, jafnvel honum, hvernig hæstv. iðnrh. hefur staðið að þessu máli. Jafnvel honum er orðið ljóst hversu illa hann hefur staðið að þessu máli. Þess vegna kom hann hér upp áðan.