07.05.1982
Efri deild: 92. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4865 í B-deild Alþingistíðinda. (4650)

279. mál, kísilmálmverksmiðja á Reyðarfirði

Lárus Jónsson:

Herra forseti. Ég legg áherslu á að þegar þetta mál kemur aftur til athugunar og afgreiðslu Alþingis verði ákvæði um eignaraðild að fyrirtækinu endurskoðað í samræmi við nýtt mat á arðsemi þess. Í trausti þess segi ég já.